Greiningadeild Glitnis spáir því að neysluverðs (VNV) hækki um 1,8% milli mars og apríl.

„Gangi spáin eftir mun ársverðbólga aukast úr 8,7% í 10,0%,“ segir í Morgunkorni Glitnis.

Þá segir greiningadeildin verðbólvaldana vera nokkra.

„Gengislækkun krónunnar síðastliðnar vikur vegur þyngst og má búast við töluverðri innfluttri verðbólgu næstu vikur vegna hennar. Áframhaldandi verðhækkun matvöru mun hafa áhrif auk hækkunar hrávöruverðs á erlendum mörkuðum. Aðrar innfluttar vörur eins og bílar hækka einnig töluvert í verði þessar vikurnar sem og verð á eldsneyti,“ segir greiningadeildin.

Þá kemur einnig fram í verðbólguspá greiningadeildar að innlendur uppsafnaður kostnaðarþrýstingur er einnig að koma hratt upp á yfirborðið, meðal annars vegna mikillar launahækkunar á síðasta ári.

Minni samkeppni frá innfluttum varningi auðveldar verðhækkun á innlendum vörum um þessar mundir, enda mikill skriður á verðbreytingum og verðvitund almennings því ekki eins næm og hún gæti verið við aðstæður meiri verðstöðugleika.

„Gengi krónunnar hefur lækkað mikið að undanförnu eða um 20% frá áramótum og um ríflega 6% frá því að síðasta verðbólguspá var unnin í mars. Mikil gengislækkun kemur vissulega fram í innfluttri verðbólgu, en misjafnlega hratt þó. Eldsneytisverð er hvað næmast fyrir gengi krónunnar en matvöruverð fylgir gengisbreytingum einnig nokkuð vel eftir. Aðrar innfluttar vörur eins og fatnaður, húsgögn, heimilistæki og bílar fylgja gengisbreytingum almennt séð ekki eins vel eftir. Hins vegar, þegar gengi krónunnar breytist jafn mikið á jafn skömmum tíma og raunin hefur verið á árinu, þá koma áhrif gengisbreytingar fyrr fram í verði á innfluttum vörum og gengisháðri þjónustu. Það virðist einmitt vera raunin nú og við búumst við að verð á þessum vörum muni hækka hratt þessar vikurnar,“ segir greiningadeildin.