Greiningadeild Glitnis gerir ráð fyrir að íbúðaverð muni lækka um 3% yfir þetta ár.

„Draga mun úr eftirspurn á íbúðamarkaði á komandi ársfjórðungum vegna hægari gangs hagkerfisins í kjölfar takmarkaðs aðgengis að lánsfé og lítillar kaupmáttaraukningar ráðstöfunartekna,“ segir í Morgunkorni Glitnis.

„Þá gerum við ráð fyrir að hægi á fólksfjölgun í landinu samhliða minnkandi spennu á vinnumarkaði, en mikill aðflutningur erlends vinnuafls til landsins hefur aukið eftirspurn á íbúðamarkaði. Framboð nýs húsnæðis er mikið eftir mikla íbúðafjárfestingu á nýliðnum árum.“

Greining Glitnis segir í Morgunkorni sínu að væntingar um þróun íbúðamarkaðarins og lakari fjármögnunarskilyrði muni hægja á framboðsaukningu nýs húsnæðis á árinu.

Þá hefur byggingarkostnaður hækkað hraðar en íbúðaverð á undanförnum mánuðum sem er til þess fallið að draga úr íbúðafjárfestingu.

„Meðalverð íbúða á árinu verður þó rúmlega 5% hærra á þessu ári miðað við síðasta ár vegna grunnáhrifa. Við reiknum með að íbúðaverð lækki á fyrri hluta næsta árs, en taki lítillega við sér á síðari hluta ársins, þó þannig að verðið muni lækka um 2,5% á árinu. Miðað við verðbólguspá okkar þýðir þessi nafnlækkun íbúðaverðs um 14% raunlækkun frá upphafi þessa árs til loka árs 2009,“ segir í Morgunkorni.