Í nýrri spá um þróun íbúðaverðs segir Greiningadeild Glitnis að íbúðaverð muni lækka um 3% yfir þetta ár.

„Draga mun úr eftirspurn vegna hægari gangs hagkerfisins, lakara aðgengis að lánsfé og lítillar kaupmáttaraukningar. Þá gerum við ráð fyrir að hægi á fólksfjölgun í landinu samhliða minnkandi spennu á vinnumarkaði, en mikill aðflutningur erlends vinnuafls til landsins hefur aukið eftirspurn á íbúðamarkaði. Framboð af nýju húsnæði er mikið eftir mikla íbúðafjárfestingu á síðustu árum, en það er til þess fallið að auka söluþrýsting á markaði. Væntingar um þróun íbúðamarkaðarins, erfitt aðgengi að lánsfé og minni eftirspurn munu hægja á aukningu framboðs húsnæðis á komandi misserum. Meðalverðbreyting íbúða á árinu, miðað við síðasta ár, verður þó jákvæð vegna grunnáhrifa, en samkvæmt spánni mun íbúðaverð verða að meðaltali 4,5% hærra á þessu ári en í fyrra. Við reiknum með að íbúðaverð lækki á fyrri hluta næsta árs, en taki lítillega við sér á síðari hluta ársins, þannig að verðið verði svipað í ársbyrjun 2009 og við lok þess árs,“ segir í Morgunkorni Glitnis.