Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,9% í janúar. Gangi spáin eftir hækkar verðbólga úr 7,5% í 7,9%.

Í Morgunkorni Íslandsbanka segir að helsta ástæða hækkunarinnar sé skattbreytingar, en auk þess munu, eins og jafnan í janúarmánuði, togast á hækkunaráhrif af áramótaendurskoðun gjaldskráa og lækkunaráhrif vegna útsala.

Um nýliðin áramót hækkaði efra þrep virðisaukaskatts úr 24,5% í 25,5%, sem að öðru jöfnu veldur 0,8% hækkun á útsöluverði vara í þessu skattþrepi að sögn greiningardeildarinnar. Þá hækkaði bensín- og olíugjald rétt fyrir jólin, og um áramót hækkaði áfengis- og tóbaksgjald um 10% auk þess sem nýjar álögur í formi orkuskatts á rafmagn og heitt vatn og kolefnisgjalds á eldsneyti litu þá dagsins ljós.

„Þessar breytingar munu að mestu leyti koma fram í verðmælingu janúarmánaðar og gerum við ráð fyrir að þær vegi til u.þ.b. 1% hækkunar VNV í mánuðinum,“ segir í Morgunkorni þar sem einnig kemur fram að í febrúar má svo vænta 0,1-0,2% hækkunaráhrifa á VNV vegna þessa.

„Við gerum ráð fyrir að verðlækkun á fötum og skóm vegna útsala hafi áhrif til 0,4% lækkunar VNV í mánuðinum, og er það í takti við undanfarin ár,“ segir í Morgunkorni.

„Auk þess munu útsölur halda aftur af verðhækkun í vöruflokkum á borð við heimilisbúnað og raftæki af ýmsu tagi.“

Þá segir í Morgunkorni að vísbendingar séu um að húsnæðisverð lækki nú öllu hraðar en undanfarna mánuði, og gerir Greining Íslandsbanka ráð fyrir að lækkun reiknaðrar húsaleigu muni vega til 0,15% lækkunar VNV að þessu sinni. Hins vegar séu gjaldskrár ýmissa þjónustuaðila, sér í lagi hjá hinu opinbera, gjarnan hækkaðar á nýju ári og gera megi ráð fyrir að sú verði einnig raunin nú.

„Loks er enn til staðar einhver hækkunarþrýstingur vegna gengishruns krónu árið 2008, enda hefur veltuhraði ýmissa vörutegunda sem teljast til varanlegra neysluvara minnkað mikið eftir hrunið á haustdögum það ár,“ segir í Morgunkorni.

Verðbólga eykst á fyrsta ársfjórðungi 2010

Gangi spá greiningardeildarinnar eftir mun VNV samtals hækka um 2,2% á fyrsta fjórðungi ársins. Þar af eru raunar 1,2-1,3% vegna hækkunar opinberra gjalda.

„Í febrúar og mars munu útsölulok þrýsta upp VNV auk þess sem áhrifa af skattahækkunum mun áfram gæta í einhverjum mæli,“ segir í Morgunkorni.

„Mæld verðbólga mun því aukast jafnt og þétt og ná hámarki í 9,4% í mars samkvæmt spánni. Í kjölfarið teljum við hins vegar að draga muni úr verðbólgunni að nýju og spáum við því að hún verði 4% í lok ársins.“

Þá segir Greining að verðbólga nú um stundir sé fyrst og fremst kostnaðarverðbólga, en ekki til komin vegna eftirspurnar eða þenslu, og þegar slaki í hagkerfinu er jafn mikill og vaxandi eins og nú er raunin dragi það mikið úr líkum á að verðbólga af því tagi nái að festa sig í sessi.

„Þá teljum við að húsnæðisverð eigi enn eftir að lækka nokkuð og gerum einnig ráð fyrir hægfara styrkingu krónu þegar fram í sækir, en hvort tveggja vegur til lækkunar á VNV,“ segir í Morgunkorni.

„Vart þarf þó að fjölyrða um þá óvissu sem ríkir um gengisþróun krónu, þrátt fyrir að hún hafi haldist nokkuð stöðug gagnvart helstu gjaldmiðlum frá síðasta hausti.“