Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,5% í október en gangi spáin eftir mun 12 mánaða verðbólga lækka úr 10,8% í 9%, „enda dettur þá út úr 12 mánaða taktinum október á síðasta ári,“ segir í Morgunkorni en í þeim mánuði hækkaði VNV um 2,1%.

Greiningardeildin segir að síðustu dreggjar útsöluloka muni væntanlega lyfta verði á fötum og skóm nokkuð, ásamt öðrum varningi, og gerum er ráð fyrir að VNV hækki um 0,2% vegna þessa. Þá séu enn að seytla inn í vöruverð áhrif af lækkun krónu á fyrri helmingi ársins.

Þá gerir Greining Íslandsbanka ráð fyrir að húsnæðisliður vísitölunnar verði óbreyttur milli mánaða. Raunar séu vísbendingar af markaði frekar til þeirrar áttar að markaðsverð íbúðarhúsnæðis kunni að hafa hækkað milli mánaða en hitt. Hins vegar hafi eldsneyti lækkað nokkuð milli mánaða og hefur það áhrif til tæplega 0,1% lækkunar VNV að mati greiningadeildarinnar.

Þá gerir Greining Íslandsbanka jafnframt ráð fyrir því að verðbólgan muni hjaðna hratt næstu mánuði og verða ríflega 6% í árslok.

„Hins vegar gæti slegið í bakseglin á fyrsta fjórðungi næsta árs, enda allar líkur á að hækkun vörugjalda og breytingar á virðisaukaskattkerfinu valdi talsverðri hækkun VNV í upphafi ársins,“ segir í Morgunkorni.

„Frá og með öðrum fjórðungi næsta árs teljum við þó að í hönd fari tímabil lítillar hækkunar VNV og áætlum við að vísitalan hækki um rétt rúmlega 2% yfir árið 2010.“

Sjá nánar Morgunkorn Glitnis.