Gengi krónu hefur lækkað um hálft prósentustig það sem af er degi. Er gengi evru nú komið í tæplega 185 kr. og gengi dollara í 129,5 kr. þegar þetta er ritað.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandbanka í morgun en þar segir að þrátt fyrir að afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum hafi að öllum líkindum verið að aukast undanfarnar vikur, m.a. vegna verulegrar hækkunar á álverði og mikils ferðamannastraums til landsins á sama tíma og ferðalög landans til útlanda hafa skroppið mikið saman frá fyrra ári, hefur gengi krónu lækkað um 2,7% undanfarna tíu daga.

„Veit það tæpast á gott fyrir haustið, þegar draga tekur úr innflæði gjaldeyris eftir því sem flóð ferðamanna hingað til lands sjatnar,“ segir í Morgunkorni.

Greining Íslandsbanka segir að sá hluti aðgerðaáætlunar AGS og stjórnvalda sem snýr að því að ná fram stöðugleika og í kjölfarið styrkingu á gengi krónu með gjaldeyrishöftum, háum vöxtum og verulegum afgangi af vöru- og þjónustuviðskiptum hafi gengið heldur brösuglega frá því áætlunin var sett fram fyrir liðlega níu mánuðum síðan.

Þannig sé evran nú aðeins tveimur krónum undir sínu hæsta verði frá upphafi á innlendum markaði, en það var 187 kr. þann 1. desember í fyrra.

„Fræðilegar úttektir á áhrifum gjaldeyrishafta sýna raunar að oftar en ekki er árangur af þeim takmarkaður, og í því ljósi ætti þróun undanfarinna mánaða ef til vill ekki að koma á óvart,“ segir í Morgunkorni.

„Misvísandi skilaboð Seðlabankans um væntanlega þróun stýrivaxta og það hversu lengi höftin kunni að vara hafa heldur ekki bætt úr skák. Virðist sem ýmsir búi sig undir yfirvofandi afnám haftanna með því að sanka að sér gjaldeyri meðan aðrir hafa brugðist við þeirri skoðun sinni að þau kunni að vara um langa hríð með því að koma upp hjáleiðum af ýmsu tagi. Verður fróðlegt að sjá hvaða augum Peningastefnunefnd bankans lítur þessa þróun, en fundargerð frá síðasta vaxtaákvörðunarfundi hennar verður væntanlega birt á morgun.“