Krónan hefur veikst um nálega hálft prósent gagnvart evru það sem af er morgni og virðist lítið lát á þeirri gengislækkunarhrinu sem staðið hefur frá 11. mars síðastliðnum.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka í morgun en þar kemur einnig fram að í gengislækkun krónu undanfarna 19 daga hefur öll raunar styrking þeirra 7 vikna sem á undan fóru gengið til baka.

Gengi evru er nú 161,7 kr. en var 141,3 kr. í dagslok 11. mars.

„Þetta er Seðlabankanum væntanlega nokkurt áhyggjuefni, enda lagði peningastefnunefnd bankans á það áherslu við síðustu vaxtaákvörðun að mikilvægt væri að halda gengi krónunnar stöðugu í ljósi þess hversu viðkvæmur efnahagur heimila, fyrirtækja og banka væri gagnvart gengissveiflum,“ segir í Morgunkorni.

„Gengisstöðugleiki er þannig yfirlýst markmið peningastefnunnar til skemmri tíma þótt verðbólgumarkmiðið sé eftir sem áður langtímamarkmið hennar.“

Í Morgunkorni kemur fram að í heild nam velta á millibankamarkaði 3,8 milljörðum króna í janúar og tæpum 4 milljörðum í febrúar. Seðlabankinn stóð að baki ríflega þriðjungi þessarar veltu í hvorum mánuði fyrir sig og alls nam sala hans á gjaldeyri í mánuðum tveimur 2,9 milljörðum króna.

„Í ljósi 17% styrkingar krónu gagnvart evru frá áramótum til febrúarloka og lítillar veltu á markaði má gera því skóna að inngrip bankans hafi átt töluverðan þátt í gengisþróun á tímabilinu,“ segir í Morgunkorni.

„Raunar má segja að slík gjaldeyrishöft, og þar með útilokun spákaupmanna frá markaði, séu forsenda fyrir því að inngrip á gjaldeyrismarkaði hafi veruleg áhrif.“

Sjá nánar Morgunkorn Íslandsbanka.