Greining Íslandsbanka telur að hækkun vísitölu neysluverðs í janúar sé aðeins tímabundið flökt á leið íbúðaverðs til frekari lækkunar.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka en í gær birti Fasteignaskrá Íslands tölur um vísitölu íbúðaverðs sem hækkaði um 0,4% í janúar eftir að hafa lækkað í fjóra mánuði þar á undan.

„Ljóst er að umhverfið á íbúðamarkaði er enn erfitt sem endurspeglar hvort tveggja framboðs- og eftirspurnarhlið markaðarins,“ segir í Morgunkorni.

„Hin mikla uppsveifla undanfarinna ára á íbúðamarkaði hefur orðið til þess að enn er nokkur fjöldi óseldra íbúða eftir á framboðshlið markaðarins nú þegar ládeyða hefur verið á þessum markaði sem skapar þrýsting til verðlækkunar.“

Þá segir greiningardeildin að margar fjármálastofnanir hafi eignast mikið af íbúðarhúsnæði á undanförnum mánuðum og ljóst sé að þessar stofnanir þurfa með tímanum að losa um slíkar fasteignir sem augljóslega mun einnig skapa frekari þrýsting til verðlækkunar. Jafnframt sé þess að vænta að hagur heimilanna versni enn á næstunni.

„Þannig er spáð að atvinnuleysi, sem nú er þegar mikið, fari vaxandi og haldist mikið alveg fram á næsta ár og kaupmáttur ráðstöfunartekna heimilanna rýrni enn frekar,“ segir í Morgunkorni.

„Því er vandséð hvað í efnahagsumhverfi heimilanna ætti að vera að kalla á aukin umsvif á íbúðamarkaði og þá verðhækkun íbúðaverðs. Til viðbótar má benda á að lækkun íbúðaverðs hefur verið frestað að vissu marki þar sem enn er ekki búið að leysa að fullu vanda þeirra sem ráða ekki við afborganir lána sinna og eru í neikvæðri eiginfjárstöðu. Sú leiðrétting á eftir að eiga sér stað og mun hún eflaust kalla á lækkun íbúðaverðs.“

Sjá nánar í Morgunkorni.