Raungengi íslensku krónunnar nú í október hækkaði annan mánuðinn í röð frá fyrri mánuði, eða um 0,2% á mælikvarða hlutfallslegs verðlags.

Á sama tíma lækkaði nafngengi krónunnar um 0,8%, m.v. vísitölu meðalgengis, en vísitala neysluverðs hér á landi hækkaði um ríflega 1%.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka en Greining Íslandsbanka segir hækkun raungengisins því skrifast á vísitölu neysluverðs þ.e. að verðbólgan hér á landi hafi verið umfram verðbólgu í helstu viðskiptalöndunum. Það var Seðlabanki Íslands sem birti tölur um raungengi í gær.

Fram kemur að við rið útreikning á raungengi krónunnar eru breytingar á nafngengi krónu leiðréttar fyrir hlutfallslegum breytingum verðlags og launa hérlendis og í viðskiptalöndum okkar. Greining Íslandsbanka segir raungengi krónunnar vera nú afar lágt í sögulegu samhengi og þá hvort sem tekið er mið af hlutfallslegu verðlagi eða hlutfallslegum launakostnaði.

Þannig mældist raungengi m.v. verðlag á þriðja fjórðungi þessa árs 67,1 stig, en til samanburðar hefur raungengið að meðaltali verið 98 stig frá árinu 1980.

„Lætur því nærri að hlutfallslegt verð á neysluvörum og þjónustu hér á landi m.v. önnur lönd hafi verið þriðjungi lægra á þriðja ársfjórðungi þessa árs en raunin hefur verið að meðaltali síðustu þrjá áratugi,“ segir í Morgunkorni.

„Jafnframt má sjá af þróun raungengis m.v. launakostnað að kraftar íslenskra launþega gagnvart starfsbræðrum þeirra í helstu viðskiptalöndum okkar hafa lækkað verulega í verði. Á þann mælikvarða mældist raungengi 59,2 stig á þriðja ársfjórðungi þessa árs og er 30% lægra en á sama tímabili í fyrra og 40% undir langtímameðaltali sínu.“

Greining Íslandsbanka segir að af ofangreindri umfjöllun sé ljóst að Ísland er ódýrt land þessa daganna sem hefur, eins og annað, kosti og ókosti í för með sér.

Þannig séu kostir lágs raungengis að það eykur samkeppnishæfni innlendra aðila hvað varðar framleiðslukostnað vöru og þjónustu og flýtir fyrir aðlögun hagkerfisins í átt að ytra jafnvægi. Þannig hjálpi það útflutningsatvinnuvegum, auk þeirri innlendu starfsemi sem á í samkeppni við innflutning. Á hinn bóginn finni landsmenn fyrir lágu raungengi í því hversu dýrt uppihald í utanlandsferðum er þessa daganna, mælt í krónum. Þetta hafi m.a. haft þau áhrif að landinn hefur snardregið úr utanferðum en á fyrstu níu mánuðum þessa árs hafði brottförum Íslendinga fækkað um 44% frá sama tímabili í fyrra.

Jafnframt sé lágt raun- og nafngengi mikill vágestur heimilanna þar sem það eykur lánsfjárkostnað þeirra, hvort sem um er að ræða gengis- eða verðtryggð lán, og skerðir kaupmátt ráðstöfunartekna.

Sjá nánar í Morgunkorni.