Greining Íslandsbanka spáir 0,5% hækkun neysluverðs í nóvember frá fyrri mánuði. Ef spá þeirra gengur eftir mun ársverðbólga hjaðna úr 3,3% í 3,1% og hefur þá ekki verið lægri frá því í júní 2005.

Helsti hækkunarvaldur vísitölu neysluverðs er seinni hluti gjaldskrárhækkunar Orkuveitu Reykjavíkur og gerir greiningin ráð fyrir að áhrif hans til hækkunar verði 0,4% í nóvember. „Auk þess má ætla að verðhækkun fatnaðar og eldsneytis leggi hvor um sig 0,1% til hækkunar VNV í mánuðinum. Á móti gerum við ráð fyrir lítilsháttar lækkun á reiknaðri húsaleigu og ýmsir innfluttir liðir lækka einnig lítillega að mati okkar, enda hefur gengi krónu verið stöðugt á haustdögum eftir umtalsverða styrkingu hennar á fyrstu átta mánuðum ársins,“ segir í morgunkorni greiningarinnar.

Mikill slaki í hagkerfinu

Segir að verðbólguþrýstingur sé með minnsta móti um þessar mundir, enda mikill slaki í íslensku hagkerfi. „Að því gefnu að ekki verði samið um umtalsverða hækkun launa í komandi kjarasamningum er í raun fátt sem ýta ætti upp verði á innlendum vörum og þjónustu. Innflutt verðbólga er sömuleiðis lítil þessa dagana og haldi krónan sjó fram á nýja árið er varla von á mikilli hækkun vísitölu neysluverðs úr þeirri áttinni, þótt áhrif hækkunar verðs á landbúnaðarvörum á heimsmarkaði á 3. fjórðungi ársins eigi enn eftir að koma fram að einhverju leyti í innlendu verðlagi.“

Greiningin telur að vísitalan muni hækka um 0,3% í desember en sú hækkun muni ganga til baka með janúarútsölum. Spá þeirra gerir ráð fyrir 2,9% verðbólgu í lok ársins.

Forsendur fyrir lítilli verðbólgu á næsta ári

„Á næsta ári spáum við enn sem fyrr verðbólgu í námunda við 2,5% markmið Seðlabankans. Teljum við að verðbólgan verði að jafnaði 2,3% á árinu 2011, en svo lítil hefur verðbólga ekki mælst hér á landi frá árinu 2003. Helstu forsendur fyrir þeirri spá eru að krónan haldist í námunda við núverandi gildi, hækkun launa í kjölfar kjarasamninga verði hófleg og að ekki verði veruleg hækkun á óbeinum sköttum og opinberum gjaldskrám næstu misserin. Þá gerum við ráð fyrir að íbúðaverð taki að hækka á ný þegar líður á komandi ár og hækki um tæplega 4% á næsta ári að meðaltali.“