Greiningardeild Arion banka spáir 0,3% lækkun á vísitölu neysluverðs í janúar. Gangi spáin eftir mun ársverðbólga mælast 3,5% samanborið við 4,2% í desember. Þessi spá er samhljóða spá sem Greining Íslandsbanka birti í morgun.

Greining Arion banka segir að lægri verðbólga skýrist af minni áhrifum af ýmsum gjaldskrárhækkunum um liðin áramót en komu fram áramótin 2012/2013. Einnig lækka aðrir liðir s.s. eldsneytisverð sem ýtir undir hjöðnun verðbólgunnar.

Greining Arion segir þó að núna sé erfitt að spá fyrir um hver endanleg áhrif skatta- og gjaldskrárhækkana verði þar sem stjórnvöld hafi heitið því að lækka eldsneytisgjöld og eftir atvikum önnur gjöld til að styðja við verðlagsforsendur kjarasamninga.

Einnig hafi fjármálaráðherra beint því til ráðherra í ríkisstjórn að þeir hafi eftirlit með því að stofnanir sem undir þá heyra skuli gæta ítrasta aðhalds og styðja við verðlagsforsendur kjarasamninga.