Greiningardeild Kaupþings spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) hækki um 2% í október.

Gangi spá þeirra eftir verður tólf mánaða verðbólga þá 15,7% en Greiningardeildin gerir ráð fyrir að hún muni ekki ná hámarki fyrr en í fyrsta lagi á fyrsta ársfjórðungi 2009.

Þetta kemur fram í Hálffimm fréttum Kaupþings.

Greiningardeild Kaupþings segir að ef gengi krónunnar mun ekki veikjast frekar má búast við að verulega hægi á mánaðarhækkunum verðbólgu á seinni hluta 2009.

„Þó eru litlar líkur á að tólf mánaða verðbólga verði í námunda við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans fyrr en í upphafi árs 2010,“ segir í Hálffimm fréttum.

„Hafa ber í huga að óvissan um verðlagsþróun er nú meiri en oft áður og er hættan á frávikum mikil.“

Þá segir Greiningardeildin að miðað við spána muni veiking krónunnar ekki skila sér jafn greiðlega út í verðlag og t.a.m. í apríl sl.

„Ástæðan er annarsvegar að eldsneytisverð og kostnaður vegna íbúðakaupa eru nú til lækkunar verðlags ólíkt því sem var framan af árinu. Að auki hefur orðið breyting á aðstæðum kaupmanna sem gæti haft áhrif á verðlagningu,“ segir í Hálffimm fréttum.

„Kaupmenn hafa t.a.m. ekki óhindrað aðgengi að gjaldeyri til að innleysa vörur. Nokkuð er um að því hafi verið frestað að taka inn nýja vöru og gæti því orðið meiri töf en venjulega á áhrifum gengisveikingar á verðlag. Loks er ljóst að snarminnkandi eftirspurn neytenda dregur úr hvata kaupmanna til verðhækkana.“

Sjá verðbólgu spá Kaupþings.