Greiningardeild Kaupþings spáir 0,7% lækkun vísitölu neysluverðs í mars, gangi það eftir mun tólf mánaða verðbólga mælast 5,5% miðað við 7,4% í febrúar.
Lækkun matarskatts hefur veruleg áhrif á mælinguna nú en hækkun fasteignaverðs sem og verðs á fatnaði og skóm - við lok útsala - mun vega á móti, segir greiningardeildin.
Greiningardeildin gerir ráð fyrir því að lækkun matarskatts muni skila sér í lækkun verðs á matvælum í matvörubúðum í mánuðinum sem og hafa veruleg áhrif á verðskrá hótel og veitingastaða. Í heild áætlar Greiningardeildin að fyrirhugaðara skattalækkanir muni lækki vísitölu neysluverðs um 1,75% milli mánaða.
Greiningardeild Kaupþings spáir því að það haldi áfram að draga hratt úr tólf mánaða verðbólgu á næstu mánuðum og hún verði á bilinu 3 til 4% í maí og líklega komin að verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands í júní. Helsti óvissuþátturinn nú er þróun fasteignaverðs, að sögn Greiningardeildarinnar.