Eitt stærsta greiðslutryggingarfélag heims, Coface, hefur nú staðfest skriflega að fyrirtækið sé tilbúið til að tryggja greiðslur íslenskra fyrirtæki á sama hátt og gildir með fyrirtæki í öðrum löndum.

Þetta þýðir að innflytjendur hér á landi mega búast við því að uppbygging trausts í formi reikningsviðskipta á milli landa sé nú í lengra á veg komið en áður.

Þetta kemur fram á vef Viðskiptaráðs í dag en Viðskiptaráð segir að greiðslutrygging geti þá orðið til þess að innflytjendur þurfi ekki að fyrirframgreiða eða staðgreiða pantanir í sama mæli og hefur tíðkast frá síðastliðnu hausti.

Fram kemur að innflytjendur, sem enn búa við ströng fyrirmæli um staðgreiðslur og innborganir pantana, geta því bent erlendum birgjum sínum á að óska eftir greiðslutryggingu vegna reikningsviðskipta við þau hjá Coface. Almennt gildir þá að erlendur aðili þarf að vera í einhverjum tryggingarviðskiptum hjá Coface og sé það svo mun Coface meta hvert íslenskt fyrirtæki fyrir sig á sama hátt og gildir um fyrirtæki frá öðrum löndum.

Coface er þriðja stærsta greiðslutryggingarfélag í heimi en fram kemur á vef Viðskiptaráðs að enn sem komið er hafa þau tvö stærstu, Euler Hermes og Atradius, ekki opnað fyrir Ísland. Þessi tvö stærstu hafa verið þau greiðslutryggingarfélög sem hafa tryggt flesta erlenda birgja sem hafa verið í reikningsviðskiptum við íslenska innflytjendur.

Sjá nánar á vef Viðskiptaráðs.