Gréta María Bergsdóttir hefur tekið til starfa sem ráðgjafi og viðburðastjóri hjá Suðvestri ehf.

Undanfarin þrjú ár hefur Gréta starfað hjá Háskólanum í Reykjavík sem verkefna- og viðburðastjóri. Þar áður vann hún hjá Listahátíð í Reykjavík við skipulagningu sex hátíða og einnig hjá RIFF, Reykjavik International Film Festival.

Auk þess hefur Gréta m.a. unnið sem sýningastjóri, framleiðandi, leiðbeinandi og aðstoðarleikstjóri í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu og Hafnarfjarðarleikhúsinu, hjá Íslensku óperunni og við Listaháskóla Íslands.

Gréta er með BA-gráðu í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og MA-gráðu í Advanced Theatre Practice frá Central School of Speech and Drama í London.

Eins og Viðskiptablaðið sagði frá er Suðvestur félag sem býður upp á fjölbreytta þjónustu í samskiptaráðgjöf, almannatengslum og viðburðastjórnun til fyrirtækja, stofnana og einstaklinga.

Fyrirtækið var nýlega stofnað af Birnu Önnu Björnsdóttur, Láru Björg Björnsdóttur og Silju Hauksdóttur.