Grétar Már Sigurðsson, sendiherra og fyrrverandi ráðuneytisstjóri, andaðist í morgun, 50 ára að aldri, eftir baráttu við illvígt mein.

Þetta kemur fram á vef utanríkisráðuneytisins en Grétar Már átti langan og farsælan feril í utanríkisþjónustunni og tengdum störfum frá árinu 1987.

„Hann var í fararbroddi íslenskra embættismanna í samskiptum við Evrópusambandið og gegndi lykilstörfum við rekstur samningsins um Evrópska efnahagssvæðið frá upphafi auk þess að gegna starfi aðstoðarframkvæmdarstjóra EFTA um tíma,“ segir á vef ráðuneytisins.

„Grétar Már var skipaður sendiherra í utanríkisþjónustu Íslands í september 2001 og ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu í júlí 2006. Síðasta starf hans í utanríkisráðuneytinu var staða sérstaks Evrópuráðgjafa utanríkisráðherra.

„Grétar Már sinnti störfum sínum af einstakri elju og vandvirkni þrátt fyrir að hafa á síðustu mánuðum háð baráttu við erfiðan sjúkdóm,“ segir á vef ráðuneytisins.

Grétar Már lætur eftir sig eiginkonu, Dóru Guðrúnu Þorvarðardóttur, og þrjár dætur.