Mjög mikil aðsókn er að sumarútsölu Nexus, sem hófst klukkan tíu í mörgun. Skömmu fyrir klukkan tíu hafði myndast löng röð fyrir utan verslunina í Nóatúni, þar sem fólk beið óþreyjufullt eftir opnun. Hleypt er inn í hollum.

Í umsögn um viðburðinn á Facebook síðu Nexus segir: „Hún hefst kl. 10 um morguninn miðvikudaginn 1. júlí og eins og venjulega þá borgar sig að vera með þeim fyrstu til að ná í feitustu bitana. Það má búast við að röð myndist fyrir opnun."

Sumarútsala Nexus er árviss viðburður verslunarinnar. Mikil aðsókn hefur verið á útsöluna undanfarin ár, en 1.100 manns hafa boðað komu sína þetta árið á Facebook. Nexus er sérverslun með bækur, myndasögur, spil, leikföng og safnvöru og er vinsæl meðal fólks með sértæk áhugamál.