Greiningarfyrirtækið CMA Datavision telur að Grikkland sé versti skuldarinn meðal ríkja heims. Grikkland tók toppsætið af Venesúela sem var versti skuldarinn fyrir ári síðan.

Samkvæmt greiningarfyrirtækinu eru 58,8% líkur á greiðslufalli hjá gríska ríkinu á næstu fimm árum.

Listi yfir 10 verstu skuldara heims og líkunum á greiðslufalli þeirra:

  1. Grikkland 58,8%
  2. Venesúela 51,4%
  3. Írland 41,2%
  4. Portúgal 35,9%
  5. Argentína 35,4%
  6. Úkraína 30,6%
  7. Spánn 26,7%
  8. Dubai 25,5%
  9. Ungverjaland 23,6%
  10. Írak 23,1%