Hagnaður af rekstri veitingastaðarins Grillmarkaðarins nam 111 milljónum króna á árinu 2016, saman borið við 83 milljónir árið 2015. Jókst hagnaður félagsins því um 33% milli ára.

Rekstrarhagnaður nam 142 milljónum og jókst um 40 milljónir milli ára.

Eignir félagsins námu 326 milljónum í árslok. Eigið fé nam 241 milljón og eiginfjárhlutfall var 73,9% og jókst um 5,3% frá fyrra ári.

Hrefna Rósa Sætran er einn af eigendum Grillmarkaðarins.