Grímur Gíslason hefur verið ráðinn sölustjóri Icelandair fyrir Þýskaland, Sviss og Austurríki með aðsetur í Frankfurt, Þýskalandi.
Grímur hóf fyrst störf árið 2012 hjá Icelandair sem vörumerkjastjóri og tók svo við sem markaðsstjóri fyrir meginland Evrópu í byrjun árs 2015.
Grímur, sem er með viðskiptafræðigráðu frá Háskólanum í Reykjavík, er giftur Lovísu Einarsdóttir og saman eiga þau einn son.