Grindavíkurkaupstaður færði í gær 2 milljarða króna inn á reikning í Sparisjóðnum í Keflavík en bæjarfélagið hefur verið með um 4 milljarða inn á innlánsreikningi í Landsbankanum eftir sölu á hlut sínum í Hitaveitu Suðurnesja fyrr á árinu.

Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta .

„Það er komið hitaveitugull í Sparisjóðinn,“ sagði Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæjarstjóri í Grindavík í samtali við Víkurfréttir. Aðspurð um hina tvo milljarðana sagðist hún ekki geta svarað því strax.

Í frétt Víkurfrétta kemur fram að undanfarið hafa staðið yfir björgunaraðgerðir vegna Sparisjóðsins í Keflavík sem stendur tæpt í ölduróti bankahörmunga.

Þá kemur fram að meðal þátttakenda í þessari björgunaraðgerð eru Reykjanesbær, Grindavíkurbær, lífeyrissjóðir og fleiri aðilar.

Í síðustu viku gaf Reykjanesbær út skuldabréf upp á 2,5 milljarða króna og var andvirðið lagt inn í Sparisjóðinn.

Geirmundur Kristinsson, Sparisjóðsstjóri fagnaði þessari ákvörðun Grindvíkinga og sagði að margir fleiri aðilar hafi lagt sitt á vogarskálarnar að undanförnu til að styrkja rekstur Spkef.