Fjármálaráðherrar evruríkjanna ákváðu í gær að láta af hendi við gríska ríkið fjóra milljarða evra sem er hluti af björgunaraðgerðum ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Í gær var greint frá því að alþjóðlegir lánadrottnar gríska ríkisins væru ósáttir við framgang björgunaraðgerðanna og við aðgerðir stjórnarinnar í ríkisfjármálum. Fjármálaráðherrarnir voru hins vegar ekki á því að hnökrarnir væru nægilega miklir til að fresta greiðslunni.

Féð er þó afhent með því skilyrði að gríska stjórnin dragi frekar úr launakostnaði og grípi til annarra aðhaldsaðgerða. AGS mun svo að öllum líkindum láta af hendi 1,8 milljarða evra eftir stjórnarfund þann 29. júlí næstkomandi. Féð verður notað til að viðhalda starfsemi gríska ríkisins, greiða vexti af skuldabréfum og greiða upp skuldabréf að verðmæti 2,17 milljarðar evra sem eru í eigu evrópska seðlabankans.

Evruríkin munu svo láta af hendi milljarð evra til viðbótar í október þyki gríska ríkið hafa staðið sig nægilega vel í aðhaldinu.