Hlutabréf í evrópskum kauphöllum hækkuðu töluvert við opnun markaða í morgun, og fylgdu þar með hækkunum sem urðu á hlutabréfaverði vestanhafs í gær.

Fyrsti viðskiptadagur ársins í kauphöllinni í London er í dag, en ekki í gær líkt og annarsstaðar, og hefur hlutabréfaverð þar unnið á hækkun sem varð á öðrum mörkuðum í gær.

FTSE 100-vísitalan hefur hækkað um 1,7% það sem af er degi.