Hækkun varð á Bandaríkjamarkaði í dag. Olíuverð lækkaði og hlutabréf tæknifyrirtækja hækkuðu eftir meðmæli greiningaraðila.

Nasdaq vísitalan hækkaði í dag um 1,5%. Dow Jones hækkaði um 0,55% og Standard & Poor´s hækkaði einnig, um 0,69%.

Olíuverð lækkaði í dag eins og áður sagði, um 2,76% og er nú 128,54 Bandaríkjadalir á tunnu.