Nýlega náði Lögmannafélag Íslands þeim merka áfanga að fjöldi félagsmanna náði tölunni 1.000 í fyrsta sinn. Í tilkynningu frá félaginu segir að þúsundasti félagsmaðurinn reyndist vera Gróa Björg Baldvinsdóttir, hdl., sem starfar hjá Landslögum.

Í tilefni af þessum tímamótum færði Jónas Þór Guðmundsson, hrl. og formaður Lögmannafélagsins, Gróu gjöf frá félaginu.