Ekki náðist að grafa nema tíu metra í vinnu við Vaðlaheiðargöng í síðustu viku. Fréttastofa RÚV greinir frá þessu.

Þar kemur fram að nánast öll vikan hafi farið í bergþéttingu í Fnjóskadal, en undanfarnar vikur hafi einungis verið unnið þeim megin í göngunum. Ekkert hafi verið borað frá því á síðasta ári Eyjafjarðarmegin vegna hita.

Samanlögð lengd Vaðlaheiðarganganna er 3.582 metrar og reiknar verktakinn með að í þessari viku verði gröfturinn hálfnaður.