Samkvæmt mánaðarlegri tilkynningu Seðlabankans hafa engar breytingar orðið á grunni dráttarvaxta frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Verða því dráttarvextir óbreyttir, 13,50% fyrir tímabilið 1. til 31. ágúst 2016.

Fyrir sama tímabil verða því jafnframt aðrir vextir óbreyttir, og verða vextir óverðtryggðra útlána 7,05%, vextir verðtryggðra útlána 3,65% og vextir af skaðabótakröfum 4,70%.