Aðalfundur samþykkir tillögu um að eftirtaldir einstaklingar verði kjörnir aðal- og varamenn í bankaráð Landsbanka Íslands hf. fram til næsta aðalfundar. Forfallist aðalmaður tekur varamaður viðkomandi aðalmanns sæti í bankaráði en að þeim varamanni frágengnum taka varamenn sæti í þeirri röð sem tillagan greinir.

Aðalmenn:Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður, Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri, Andri Sveinsson, viðskiptafræðingur, Guðbjörg Matthíasdóttir, kennari og Þorgeir Baldursson, forstjóri. Í varastjórn sitja:
Einar Benediktsson, forstjóri, Gunnar Felixson, framkvæmdastjóri, Þorsteinn Sveinsson, fyrrv. kaupfélagsstjóri, Þórunn K. Þorsteinsdóttir, bankafulltrúi og Helga Jónsdóttir, bankafulltrúi