Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis á Íslandi, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá fyrirtækinu í kjölfar breytinga sem verða á yfirstjórn Actavis plc, móðurfélags Actavis á Íslandi, í kjölfar yfirtöku á frumlyfjafyrirtækinu Forest Laboratories Inc.

Guðbjörg Edda sat í framkvæmdastjórn Actavis um langt skeið, allt þar til fyrirtækið var keypt af Watson árið 2012. Hún var m.a. aðstoðarforstjóri samstæðunnar á árunum 2008-2010 og tók svo við starfi forstjóra Actavis á Íslandi haustið 2010. Í tilkynningu frá Actavis eru Guðbjörgu Eddu þökkuð afar farsæl störf í þágu félagsins, þar sem hún hefur gegnt lykilhlutverki í vexti og framgangi fyrirtækisins í yfir 30 ár, bæði hér á Íslandi og alþjóðlega.

„Að vel athuguðu máli komst ég að þeirri niðurstöðu að þetta væri heppilegur tími til að stíga til hliðar og mun ég því láta af störfum hjá Actavis 1. júlí. Þetta var ekki auðveld ákvörðun, því ég hef starfað hjá fyrirtækinu í meira en 30 ár og hef notið þess að vinna með því frábæra fólki sem starfar hjá Actavis,“ segir Guðbjörg Edda í tilkynningu í tilefni af þessu.

Þegar Guðbjörg Edda lætur af störfum mun Valur Ragnarsson verða í forsvari fyrir sameiginlega starfsemi Actavis á Íslandi, samhliða starfi sínu sem forstjóri Medis. Medis er eitt af dótturfyrirtækjum Actavis plc og annast sölu á lyfjum og lyfjahugviti fyrir samstæðuna til annarra lyfjafyrirtækja. Hjá Medis starfa um 100 starfsmenn á Íslandi og erlendis. Velta Medis er um 35 milljarðar ISK á ári og meðal viðskiptavina Medis eru öll stærstu samheitalyfjafyrirtæki heims.