Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis á Íslandi, Egill Jónsson, framleiðslustjóri Össurar og Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa, hlutu í dag stjórnunarverðlaun Stjórnvísi. Rúmlega fjörutíu stjórnendur voru tilnefndir til verðlaunanna. Þau voru afhent við hátíðlega athöfn í Turninum í Kópavogi í dag.
Þetta var fjórða skiptið sem verðlaunin eru afhent.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti verðlaunin og flutti stutt ávarp við athöfnina.