Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, verkfræðingur og sérfræðingur í greiningu hjá Eyri Invest, hefur hætt störfum og ráðið sig til Marels. Reyndar eru tengslin á milli þessara tveggja fyrirtækja mikil þar sem Eyrir er aðaleigandi Marels með rúmlega 30% eignarhlut.

Guðbjörg verður verkefnastjóri fyrir framkvæmdastjórn Marels og kemur að gerð og framkvæmd áætlana um rannsóknir og þróun auk þess að greina möguleg vaxtartækifæri.

Guðbjörg er 31 árs og á fimm ára dóttur. Hún hefur áhuga á fótbolta og undanfarið hafa hlaup fangað athygli hennar. Hljóp hún í New York maraþoninu árið 2009.