Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir var tekjuhæsti fasteignasalinn landsins í fyrra og námu tekjur hennar að jafnaði rúmlega 2,8 milljónum króna á mánuði, samkvæmt álagningarskrám ríkisskattstjóra.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag. Í blaðinu má finna upplýsingar um tekjur ríflega 3.700 Íslendinga. Að þessu sinnir eru tveir nýir flokkar í blaðinu. Annars vegar yfir tekjur áhrifavalda á samfélagsmiðlum og hins vegar fasteignasala.

Næst tekjuhæsti fasteignasalinn á eftir Guðbjörgu var Dagbjartur Willardsson en mánaðartekjur hans námu að jafnaði 1,7 milljónum á mánuði.

Fimm tekjuhæstu fasteignasalarnir árið 2018:

  1. Guðbjörg G Sveinbjörnsdóttir, sölustj. Trausta fasteignastölu 2.824 milljónir
  2. Dagbjartur Willardsson, fasteignasali. Fast. Reykjavíkur 1.746 milljónir
  3. Arnar Birgisson, framkvæmdastj. Eignaver 1.378 milljónir
  4. Brandur Gunnarsson, fasteignasali. Borg 1.250 milljónir
  5. Einar Páll Kjærnested, fasteingasali. Fasteignas. Mosfellsb. 1.24 milljónir

Útreikningar Frjálsrar verslunar byggja á útsvarsskyldum tekjur á árinu 2018 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna starfa á fyrri ára. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði.

Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í morgun. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér .