Samorka hefur ráðið til sín Guðfinn Þor Newman og Lovísu Arnadóttur.

Lovísa var ráðin í starf upplýsingafulltrúa Samorku. Hún er með B.A. gráðu í bókmenntafræði og M.A. gráðu í blaða- og fréttamennsku. . Lovísa hefur áður m.a. starfað sem markaðsráðgjafi hjá Birtingahúsinu og hjá RÚV ohf. sem fréttamaður, dagskrárgerðarmaður, íþróttafréttamaður o.fl.

Guðfinnur var ráðinn sem sérfræðingur í greiningu. Hann er viðskiptafræðingur áð mennt og hefur lokið prófi í verðbréfamiðlun. Hann hefur áður starfað hjá Bandalagi háskólamanna, á skrifstofu borgarhagfræðings hjá Reykjavíkurborg og hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.