Stjórn Sambands íslenskra sparisjóða og Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri hafa komist að samkomulagi um að Guðjón hætti sem framkvæmdastjóri sambandsins þann 30. nóvember næstkomandi samkvæmt tilkynningu frá sambandinu.

Guðjón hefur verið framkvæmdastjóri Sambands sparisjóða í átta ár en áður hafði hann rekið eigið ráðgjafarfyrirtæki í tuttugu ár. Hann snýr nú aftur til ráðgjafastarfa en mun jafnframt sinna sérverkefnum fyrir Samband sparisjóða næstu mánuði.

Nú stendur yfir vinna á vegum sambandsins við stefnumótun í samstarfi við sparisjóðina að teknu tilliti til þeirra breytinga sem orðið hafa á sparisjóðakerfinu og umhverfi þess sl. á r.