Guðjón Ingi Ágústsson hefur tekið við sem forstöðumaður Stafrænna lausna og upplýsingatækni hjá Póstinum en hann hefur áður sinnt stöðu tæknirekstrarstjóra fyrirtækisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Póstinum.

Með breytingunni kemur hann inn í teymi lykilstjórnenda hjá Póstinum og mun hann leiða þróun stafrænna lausna og rekstur upplýsingatæknikerfa Póstsins. Guðjón Guðjón er með M.Sc. gráðu í upplýsingatækni og viðskiptum frá IT University of Copenhagen og hefur meðal annars leitt teymi öryggislausna- og ráðgjafateyma, starfað sem verkefnastjóri, vörueigandi og vörustjóri í hugbúnaðargerð, auk þess að sinna ráðgjöf í öryggismálum.

„Það er mikill heiður að vera treyst fyrir þessu hlutverki á þessum spennandi tímum hjá Póstinum. Við erum á fleygiferð í þróun stafrænna lausna og erum stöðugt að leita nýrra leiða til að þjónusta viðskiptavini á nýjan og ferskan hátt. Hjá fyrirtækinu starfar þéttur hópur sérfræðinga á sviði upplýsingatækni sem vinnur hörðum höndum að því að bæta upplifun viðskiptavina og hjálpa þeim að vera við stýrið þegar kemur að viðskiptum við Póstinn. Við settum nýlega í loftið nýtt app þar sem viðskiptavinir hafa þjónustulausnir Póstsins í vasanum. Það verður gaman að leiða frekari þróun á þessu sviði," segir Guðjón Ingi, í tilkynningunni.

„Það er frábært að fá Guðjón inn í lykilstjórnendateymið okkar. Hann hefur sinnt mikilvægu hlutverki innan Póstsins og það verður gaman að fylgjast með honum leiða svið Stafrænna lausna og upplýsingatækni til áframhaldandi framþróunar. Við höfum kynnt ýmsar nýjar lausnir undanfarin misseri sem bæta þjónustu til viðskiptavina okkar og þar leika stafrænar lausnir algjört lykilhlutverk til framtíðar. Guðjón er sterkur leiðtogi sem mun keyra stafrænu málin áfram og byggja enn frekar undir rekstur tæknilausna og þróunar," segir Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Póstsins, í tilkynningunni.