Prentsmiðjurnar Litróf, GuðjónÓ og Prenttækni hafa sameinast undir merki Litrófs en fyrirtækið er til húsa í Vatnagörðum 14 í Reykjavík. Fyrirtækin, sem öll eru rótgróin og vel þekkt hafa um áratugaskeið boðið alhliða prentþjónustu fyrir einstaklinga og  fyrirtæki.

Fyrir nokkru keypti Litróf bókbandsvinnustofuna Bókavirkið ehf. og er því með alla framleiðslulínuna við bókagerð og getur boðið bæði kiljur og harðspjaldabækur.

„Litróf er orðið býsna gamalgróið fyrirtæki og hefur verið rekið á sömu kennitölunni í 77 ár en það var stofnað árið 1943,“ segir Konráð Ingi Jónsson, framkvæmdastjóri Litrófs.

„Litróf hefur vaxið talsvert á síðustu árum og hefur hlotið nafnbótina Framúrskarandi fyrirtæki undanfarin ár. Með sameiningunni við GuðjónÓ og Prenttækni erum við fyrst og fremst að bæta reksturinn enn frekar og tryggja áfram góða alhliða prentþjónustu fyrir fólk og fyrirtæki.“

Prentsmiðjan Litróf er með Svansvottun sem tryggir lágmörkun neikvæðra áhrifa rekstursins á umhverfi og heilsu. GuðjónÓ varð á sínum tíma fyrsta umhverfisvæna prentsmiðjan á Íslandi en síðar fengu Litróf og Prenttækni líka þá vottun.

Umhverfisvottunin felur í sér nákvæmt eftirlit á allri efnisnotkun prentsmiðjunnar, m.a.  til að minnka sóun á pappír og prentlitum. Það skilar sér beint í hagkvæmari rekstri á fyrirtækinu, bæði með lægri sorphirðu- og urðunargjöldum og mun betri nýtingu á hráefni.