Þróunin undanfarin ár ekki til þess að styðja við hærra menntunarstig í landinu. Kjör háskólamanna hafa versnað í samanburði við kjör annarra. Þetta sagði Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM, á kjararáðstefnu félagsins í dag.

Guðlaug segir að til þess að BHM fallist á hugmyndir um kaupmáttarsamninga þá þurfi stefna ríkisstjórnarinnar að vera skýrari.