Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Stekks fjárfestingafélags og stjórnarformaður Límtré Vírnets, Securitas og Júpíters rekstrarfélags hefur ákveðið að sækjast eftir formennsku í Samtökum iðnaðarins.

Ný stjórn samtakanna verður kjörin með rafrænum hætti í aðdraganda aðalfundar, sem haldinn verður í lok apríl, en bæði Límtré Vírnet og Securitas eru í Samtökum iðnaðarins.

Guðlaug hefur stýrt fjárfestingarfélaginu Stekk frá árinu 2010 með góðum árangri, en áður starfaði hún hjá Deutsche Bank og USB fjárfestingarbanka í New York. Samanlögð reynsla af stjórnarsetu spannar 28 ár, þar af hefur hún gegnt stjórnarformennsku í 16 ár.

Í fréttatilkynningu segir að undir hennar formennsku hafi félög í eigu Stekks aukið umsvif sín og veltu, skilað betri afkomu, greitt niður skuldir og ráðist í nýsköpun og þróun.

Guðlaug er viðskiptafræðingur að mennt, með B.Sc. gráðu frá New York University og MBA frá sama háskóla með sérhæfingu í tölfræðilegri fjármálafræði, alþjóðlegri fjármálafræði og hagfræði.

„Íslenskur iðnaður gegnir lykilhlutverki í endurreisn hagkerfisins, eftir einhverja skörpustu niðursveiflu lýðveldissögunnar. Ég vil leggja mitt af mörkum í þeirri vegferð og vona að mín reynsla af fjárfestingum og rekstri við krefjandi aðstæður geti nýst í hagsmunabaráttu fyrir íslenskan iðnað og samfélagið allt. Mikilvægi iðnaðarins hefur sjaldan verið augljósara en nú, þegar hagkerfið hefur nánast lokast,“ segir Guðlaug Kristbjörg.

„Gjaldeyristekjurnar sem greinin skapar eru gulls ígildi, innlend matvælafyrirtæki tryggja aðgengi neytenda að góðum neysluvörum og það er mikilvægt að byggingariðnaðurinn haldi velli, enda mun þörfin fyrir vel byggt húsnæði ekki minnka til framtíðar. Á hinn bóginn þarf að styðja við þær greinar sem verst hafa orðið úti, ekki síst lítil fyrirtæki sem mega ekki starfa af sóttvarnarástæðum, og sprotafyrirtæki sem annars munu líða fyrir aðstæðurnar. Íslenskur leikja- og kvikmyndaiðnaður hefur staðið í miklum blóma og við ætlum að hlúa að þeim framtíðargreinum, sem munu skapa verðmæti fyrir okkur öll.“