Guðlaugur Ingi Guðlaugsson hefur bæst í eigendahóp Eignamiðlunar.

Guðlaugur hefur starfað hjá Eignamiðlun frá 2013. Hann er löggiltur fasteignasali og hefur starfað við fasteignasölu síðan 2005.

Eignamiðlun ehf er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi og hefur verið til í 60 ár. Meðal viðskiptavina fyrirtækisins má nefna einstaklinga, fyrirtæki, stofnanir, banka, hið opinbera og sveitarfélög. Stærstu verkefni fyrirtækisins eru sala á íbúðar- og atvinnuhúsnæði og verðmöt á fasteignum.