Landsbankinn greiddi Bogmanninum, eignarhaldsfélagi í eigu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar þingmanns og konu hans Ágústu Johnson, 33 milljónir króna árið 2003 vegna kaupa á tryggingamiðlun svissneska tryggingafélagsins Swiss Life. Félag Guðlaugs var til skamms tíma með umboð fyrir tryggingamiðluninni hér á landi.

Guðlaugur segir í samtali við DV um málið í dag hafa keypt tryggingamiðlunina af Búnaðarbankanum þegar hann vann þar með láni frá bankanum. Hann hafi selt hana stuttu síðar til Landsbankans og ekki hagnast mikið á viðskiptunum.