Guðlaugur Þór Þórðarson hefur farið fram á fund í nefndinni til að ræða áhrif sjávarútvegsfrumvarpana á bankanna. Hann óskar eftir því að til fundarins verði boðaðir fulltrúar bankanna, Bankasýslunnar og ráðuneytisins.

Í tilkynningu sem Guðlaugur sendi frá sér í gærkvöldi segir hann mikilvægt að upplýsa hvaða áhrif frumvörpin muni hafa á bankanna og þar af leiðandi ríkissjóð. Fram hafi komið að í samningum kröfuhafa og ríkisstjórnarinnar við stofnun nýju bankanna beri ríkissjóður ábyrgð á þeim stjórnvaldsaðgerðum sem skaða efnahag bankanna. Í umræðum í þinginu hafi ráðherra upplýst að ekki hafa verið skoðuð áhrif frumvarpanna á efnahag bankanna. Það þurfi því ekki að fjölyrða um mikilvægi málsins.