Guðmundur Helgi Finnbogason, sérfræðingur á málefnasviði hjá Viðskiptaráði Íslands.
Guðmundur Helgi Finnbogason, sérfræðingur á málefnasviði hjá Viðskiptaráði Íslands.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Guðmundur Helgi Finnbogason hefur verið ráðinn til starfa sem sérfræðingur á málefnasviði Viðskiptaráðs Íslands. Þetta kemur fram á vefsíðu Viðskiptaráðs .

Verkefni Guðmundar munu fyrst og fremst snúa að hagfræðilegum viðfangsefnum í málefnastarfi ráðsins, s.s. greiningarvinnu og skrifum.

Guðmundur Helgi starfaði áður hjá hagfræðideild Landsbankans. Hann hefur einnig sinnt dæmatímakennslu við Háskóla Íslands og stundakennslu við Menntaskólann í Reykjavík.

Guðmundur lauk meistaraprófi í fjármálum og hagfræði frá University of Warwick í janúar 2014. Þar áður lauk hann grunnnámi í hagfræði við Háskóla Íslands.