Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims hf., hyggst stefna Elliða Vignissyni, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum fyrir rógburð og tilraun til að sverta mannorð. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Guðmundur sendi frá sér rétt í þessu.

Eins og VB.is greindi frá fékk Reynir Traustason, ritstjóri DV, lán frá Guðmundi til að kaupa hlutabréf í DV. Elliði Vignisson fjallaði um málið á heimasíðu sinni og sagði að Guðmundur hafi lánað Reyni til þess að „losa sjálfan sig við umfjöllun um ýmis mál og fá í staðinn umfjöllun um meðeigendur sína i Vinnslustöð Vestmannaeyja.“

Í tilkynningunni frá Guðmundi segist hann, sem hluthafi í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum, hafa verið í deilum við meirihluta hluthafa. Hann segist telja að stefna og gjörðir meirihlutans hafi skaðað Vinnslustöðina og í dag sé félagið illa rekið sjávarútvegsfyrirtæki.

Bæjarstjórinn er að slá sig riddara

Guðmundur segir hins vegar fráleitt að hann hafi haft áhrif á skrif DV. „Það má segja um mín viðskipti á síðustu árum að þau hafi bæði verið viturleg og óviturleg en að segja að ég hafi stjórnað ritstjórnarstefnu DV er rangt og fjarri öllum raunveruleika.“

Tilkynninguna endar Guðmundur á eftirfarandi orðum: „Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum er að reyna að slá sig riddara og nýta sér deilur annarra til að vekja athygli á sjálfum sér.“

Yfirlýsing Guðmundar í heild sinni:

Í tilefni frétta í fjölmiðlum síðustu daga vegna deilna hluthafa í DV er rétt að geta þess að undirritaður hefur stundað viðskipti í langa tíð. Ég hef í gegnum mín félög styrkt og lánað fjármuni til ýmissa verka, einstaklinga og félaga. Ég hef ekki verið að auglýsa það né tilkynna það opinberlega nema þar sem það á við. Hvort sem það er lán eða styrkir til einstaklinga (eins og lánið til Reynis Traustasonar), líknarfélaga, íþróttafélaga, íþróttamanna, námsmanna, vísindastarfs, listastarfs eða hvað sem er. En þar sem ég er borinn svo alvarlegum ásökunum af bæjarstjóra Vestmannaeyja þá ætla ég að svara þessu og taka til varnar.

Þegar Reynir Traustason kom til mín á síðasta ári og spurði hvort ég vildi verða hluthafi í DV sagði ég strax nei. En þegar hann sagði að það væru komnir fleiri fjárfestar að blaðinu þá sagði ég við hann að ég gæti alveg lánað honum en ég vildi ekki fara í blaðarekstur og það væri ekki mitt fag og ég væri oft ekki sammála skrifum DV. Ég hef heldur ekki verið sammála stefnu og skrifum Morgunblaðsins síðustu áratugi og þegar leitað var til mín fyrir nokkrum árum um hlutafé í það blað sagði ég nei. Það má segja um mín viðskipti á síðustu árum að þau hafi bæði verið viturleg og óviturleg en að segja að ég hafi stjórnað ritstjórnarstefnu DV er rangt og fjarri öllum raunveruleika.

Elliða Vignissyni bæjarstjóra í Vestmannaeyjum verður stefnt fyrir rógburð og tilraun til að sverta mannorð. Sem hluthafi í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum hef ég verið í deilum við meirihluta hluthafa. Ég hef talið að stefna og gjörðir meirihluta hluthafa Vinnslustöðvarinnar (VSV) í Vestmannaeyjum hafi skaðað VSV og í dag sé félagið illa rekið sjávarútvegsfyrirtæki vegna stefnu meirihluta hluthafa og meirihluta stjórnar VSV. Þessa skoðun hef ég sagt á aðalfundum félagsins og í öllum samtölum þegar málefni VSV eru rædd. Ég er ekki í neinum persónulegum deilum við framkvæmdarstjóra VSV, starfsfólk VSV eða samfélagið í Vestmannaeyjum, heldur við meirihluta hluthafa VSV.

Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum er að reyna að slá sig til riddara og nýta sér deilur annara til að vekja athygli á sjálfum sér.