Í frétt um Brim í Viðskiptablaðinu í dag segir að Brim hafi ekki skilað inn ársreikningi vegna ársins 2008 og tekið skal fram að á vef Ríkisskattstjóra kemur fram að Brim hafi ekki skilað honum. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, segir að félagið hafi skilað ársreikningi fyrir árið 2008, reyndar seint. Honum hafi verið skilað með reikningnum fyrir árið 2009. Það sé því ekki hans sök að rangar upplýsingar um skil sé að finna á vef RSK.