Stjórn FRÍ hefur gengið frá ráðningu Guðmundar Karlssonar í starf framkvæmdastjóra FRÍ. Guðmundur sem er íþróttafræðingur MSc. frá Íþróttaháskólanum í Köln hefur áður komið að störfum FRÍ sem landsliðsþjálfari í frjálsíþróttum, á árunum 1988-1990 og 2002-2004. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Guðmundur starfaði við íþróttaþjálfun um áratuga skeið með góðum árangri og á hann einnig farsælan feril að baki sem íþróttamaður og landsliðsmaður í frjálsíþróttum til 17 ára. Guðmundur var eigandi og framkvæmdastjóri íþróttavöruverslunarinnar Fjölsport til ársins 2005, en þá hóf hann störf í tölvugeiranum og starfaði hjá LS Retail til ársins 2015 er hann hóf störf hjá þýska hugbúnaðarfyrirtækinu akquinet AG.

„Stjórn FRÍ telur að með ráðningu Guðmundar hafi Frjálsíþróttasambandið fengið öflugan fag- og rekstrarmann með mikla reynslu innan íþróttahreyfingarinnar hérlendis og erlendis. Guðmundur hefur störf í apríl,“ segir í tilkynningunni.