Guðmundur Pálsson er nýr framkvæmdastjóri PIPARS\TBWA en hann tekur við af Valgeiri Magnússyni sem hefur gegnt starfinu frá stofnun auglýsingastofunnar. Valgeir mun starfa áfram hjá stofunni sem starfandi stjórnarformaður og mun færa sig alfarið í að vinna fyrir viðskiptavini stofunnar að hugmyndum og stefnumótun. Einnig mun hann styðja við uppbyggingu Ghostlamp á erlendum vettvangi, en PIPAR\TBWA er einn af stærstu hluthöfum í því fyrirtæki. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„Ég er mjög spenntur fyrir því að taka við þessu starfi en við Valgeir höfum verið að færa mjög mikið til í verkskipulagi okkar á milli undanfarið ár og því var þetta rökrétt framhald sem við höfum undirbúið í talsverðan tíma,“ er haft eftir Guðmundi í tilkynningunni.

„Umhverfið er síbreytilegt og við þurfum alltaf að vera á tánum til að vera fremst í okkar fagi. Það þýðir að við þurfum sífellt að horfa inn á við og bæta okkur. Til að ná að gæta þess að hugmyndavinna sé í fyrsta sæti á sama tíma og miðlum fjölgar í sífellu þurfum við að dreifa kröftum okkar til að geta séð til þess að viðskiptavinir okkar nái árangri og starfsfólkið okkar nái að blómstra. Þetta er fín lína sem erfitt er að ná en við teljum okkur vera á réttri leið. Við munum aldrei ná áfangastað, því þá byrjum við að staðna sem er dauðadómur fyrir fyrirtæki í okkar bransa,“ bætir hann við.

Guðmundur lærði auglýsingafræði í Bandaríkjunum og hefur starfað sem tenglastjóri í rúm sjö ár. Áður var hann framkvæmdastjóri TBWA\Reykjavík, svæðisstjóri Iceland Express, markaðs- og deildarstjóri IKEA og markaðsstjóri B&L.

Vigdís Jóhannsdóttir hefur jafnframt verið ráðin aðstoðarframkvæmdastjóri PIPAR\TBWA, en hún hefur starfað sem viðskiptastjóri hjá stofunni í rúm sjö ár og mun sinna því starfi áfram. Þá er Rannveig Tryggvadóttir nýr framkvæmdastjóri PIPAR\MEDIA, en hún hefur verið birtingastjóri þar síðastliðin fimm ár.

„Ég hef gegnt starfi framkvæmdastjóra í mjög langan tíma og nú er kominn tími á að gera breytingar til að halda áfram. Ég hef lengi verið með alla þræði hjá mér en hef markvisst unnið að því ásamt Guðmundi að dreifa ábyrgð, virkja fleiri og skýra hlutverk betur. Ég fór í auglýsingabransann til að búa til auglýsingar og vinna í markaðssetningu fyrir viðskiptavini okkar. Nú ætla ég að einbeita mér að því sem mér finnst skemmtilegast og leyfa öðrum að stjórna,“ segir Valgeir um breytingarnar.

„PIPAR\TBWA er ein af stærstu auglýsingastofum landsins með rúmlega 50 starfsmenn. PIPAR\TBWA er í eigu starfsfólks stofunnar,“ segir að lokum í fréttatilkynningunni.