Guðmundur Kristjánsson, hefur tekið við á ný sem forstjóri útgerðarfélagsins Brims. Hann steig til hliðar sem forstjóri af persónulegum ástæðum í lok apríl 2020 . Guðmundur er jafnframt aðaleigandi félagsins í gegnum Útgerðarfélag Reykjavíkur.

„Það er ánægjulegt að vera kominn aftur til starfa. Ég hef nýtt tímann vel og kem fullur krafts og tilhlökkunar til starfa. Við höfum séð að þegar aðstæður í efnahagslífinu verða erfiðar, eins og síðustu misseri, að sjávarútvegur er burðarstólpi í íslensku samfélagi og við hjá Brim munum leggja okkar af mörkum til þess að svo verði áfram. Brim stundar ábyrgar veiðar og vinnslu enda er það grundvöllur fyrir því að tryggja til framtíðar trausta atvinnu og byggð á Íslandi,“ er haft eftir Guðmundi í tilkynningu frá félaginu.

„Við hjá Brim erum ánægð með að fá Guðmund aftur til starfa. Guðmundur býr yfir gríðarlegri reynslu og hefur skýra framtíðarsýn á rekstur sjávarútvegsfyrirtækja,“ er jafnframt haft eftir Kristjáni Þ. Davíðssyni stjórnarformanni Brims.