Guðmundur Arason hefur verið ráðinn til starfa sem framkvæmdastjóri kvikmyndaframleiðslufyrirtækisins True North. Guðmundur tekur við starfinu af Helgu Margréti Reykdal sem hefur verið framkvæmdarstjóri frá stofnun True North árið 2003.

Leifur B. Dagfinnsson, stjórnarformaður True North, þakkar Helgu fyrir vel unnin störf og býður Guðmund velkominn til starfa í tilkynningu. Guðmundur starfaði með hléum hjá Securitas frá árinu 1992, og var framkvæmdastjóri og síðar forstjóri fyrirtækisins.