Guðni B. Guðnason hefur verið ráðinn yfirmaður upplýsingatækni Landsbankans. Umsækjendur um stöðuna voru 63, að því er kemur fram í tilkynningu um ráðninguna. Staðan var auglýst í desember sl.

Guðni hefur margþætta reynslu af upplýsingatækni og af stjórnun og rekstri fyrirtækja. Hann var framkvæmdastjóri Lyfja og heilsu á árunum 2006 - 2010 og var einn af stofnendum Álits sem síðar varð ANZA og framkvæmdastjóri þess á árunum 1997-2006. Á árunum 1992 – 1997 var Guðni yfirmaður tölvumála hjá ISAL í Straumsvík. Guðni er tölvunarfræðingur frá Háskóla Íslands.  Hann mun hefja störf í Landsbankanum síðar í þessum mánuði.