Guðni Rafn Eiríksson verðbréfamiðlari hefur hætt störfum hjá Eyri Invest. Áður starfaði Guðni hjá Jöklum-Verðbréfum og gegndi þar starfi yfirmanns eignastýringar. Þá starfaði hann einnig sem verðbréfamiðlari hjá Kaupþingi.

Guðni útskrifaðist frá Háskóla íslands árið 2001 með BSc í viðskiptafræði og ári síðar sem löggiltur verðbréfamiðlari.